Húsgagn og listmunur

Húsgagn og listmunur á mbl.is þann 29. nóvember 2009.

Fuzzy - 0029Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta fuzzy-stólinn árið 1972 og hefur eftirspurnin eftir honum verið stöðug síðan. Fuzzy er lítill kollur með sútaðri lambsgæru og minna fæturnir á teygða vatnsdropa.

Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta fuzzy-stólinn árið 1972 og hefur eftirspurnin eftir honum verið stöðug síðan. Fuzzy er lítill kollur með sútaðri lambsgæru og minna fæturnir á teygða vatnsdropa. Hægt er að fá gæruna í sex ólíkum litum og fæturna í þremur. „Hugmyndin er í raun komin úr fjósakollinum,“ segir Sigurður, sem er lærður húsgagnabólstrari. Á dögunum smíðaði Sigurður þúsundasta fuzzy stólinn og af því tilefni var búin til sérstök hátíðarútgáfa þar sem stóllinn er með álfótum. „Hugmyndin var að tengja saman íslensku kindina, sem við höfum lifað á í gegnum aldirnar, við nýja tímann,“ segir Sigurður en hátíðarútgáfuna er hægt að nálgast í Kraum, Epal og Mýrinni.

Árið 1972 var Sigurður að hætta störfum og segist hafa farið að föndra við að búa til stólinn. Hann sló í gegn og var afar vinsæl fermingargjöf næstu árin á eftir. „Á þriðjudaginn hringdi í mig fimmtug manneskja og sagðist hafa fengið stólinn í fermingargjöf. Hún hafði týnt einni löppinni undan stólnum og vildi vita hvort ég gæti hjálpað henni með það. Það er afskaplega gaman þegar fullorðið fólk segir mér frá slíku,“ segir Sigurður.

Hann segir það hafa komið sér á óvart að stóllinn yrði vinsæll svona lengi, hann bjóst ekki við að vera enn að smíða fuzzy-stóla tæpum fjörutíu árum eftir að fyrsta eintakið leit dagsins ljós. „Þetta er búið að koma mikið á óvart. Ég var bara að búa mér til lifibrauð á sínum tíma en öllum þykir stóllinn fallegur. Sumir stilla honum upp sem húsgagni en aðrir sem listmun,“ segir Sigurður og bætir við að stóllinn hafi á sínum tíma farið vítt og breitt um Evrópu og til Bandaríkjanna með Scandinavian Design og að auki sé eitt eintak af stólnum til sýnis hjá Hönnunarsafni Íslands. „Það sem hefur komið mér mest á óvart er að stóllinn er núna til sölu í Magasin du Nord. Það er búið að senda prufusendingu þangað og það hafa orðið einhver viðbrögð, hvað það verður veit ég nú ekki. En þetta hefði mér aldrei dottið í hug, að ég myndi selja húsgögn til Danmerkur. Danir eru miklir snillingar og maður hefur lært mikið af samskiptum við þá.“