Það var árið 1970 að Sigurður Már Helgason
hannaði og smíðaði fyrsta Fuzzy stólinn, lítinn
koll með sútaðri lambsgæru með
ullinni eins og hún kemur af kindinni.
Fætur eru renndir í líki vatnsdropa. Hver og einn Fuzzy kollur er einstakur þar sem enginn er nákvæmlega eins.
Hönnun á umbúðum þóttu strax vel úr garði gerðar og fengu t.a.m. umbúðaverðlaun Samtaka Iðnaðarins árið 1972. Stefnan var síðan tekin á það að koma gærukollinum á framfæri á Keflavíkurflugvelli og þar sá Sigurður Már fyrir að það hentaði útlendingum að grípa handhægan kassa með sér í millilendingum og á leið úr landi. Fuzzy varð vinsæl fermingagjöf og þótti tilvalin í gjafir við útskrift og önnur tækifæri. Fuzzy kollurinn er algerlega tímalaus hönnun sem á inni alls staðar fyrir einstakt útlit og flott yfirbragð.
Litli íslenski gærukollurinn hefur fjóra ávala og sterka viðarfætur. Setan er bólstruð með ekta íslenskri gæru. Hægt er að fá Fuzzy í hvítu, svörtu, hrafnsvörtu, dökkgráu, ljósgráu, flekkóttu, dökkmórauðu og ljósmórauðu.
Fuzzy kemur í sérhönnuðum kassa af stærð 40 x 37 x 14 cm og heildarþyngd er 3 kg. Kassinn hentar vel til sendinga innanlands og utan.