Gærukollurinn Fuzzy

Viðtal í Kastljósinu á RÚV þann 9. febrúar 2012.

Gærukollurinn Fuzzy var vinsælasta fermingargjöf stúlkna upp úr 1970.

Sigurður Már Helgason bólstrari er hugmyndasmiður kollsins og býr hann til í bílskúrnum. Kollurinn hefur farið víða og verið til sýnis á hinum ýmsu hönnunarsýningum. Þegar Kastljós ætlaði að hitta á Sigurð til að taka viðtal um kollinn var ekki hlaupið að því – hann fer í sundleikfimi, hann syngur í kór og kennir leikfimi. Margrét Erla og Benedikt Ketilsson hittu Sigurð á dögunum.

Smelltu hér til að horfa á viðtalið

siggi_ruv_kastljos

Gamall gærukollur í tísku í útlöndum

Fréttablaðið 4. júlí 2012
Gærukollur sem hannaður var fyrir fjörutíu og tveimur árum eykur nú hróður íslenskrar hönnunar víða um heim. Víða er bannað að sitja á kollinum.

gærukollur

Húsgagn og listmunur

Húsgagn og listmunur á mbl.is þann 29. nóvember 2009.

Fuzzy - 0029Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta fuzzy-stólinn árið 1972 og hefur eftirspurnin eftir honum verið stöðug síðan. Fuzzy er lítill kollur með sútaðri lambsgæru og minna fæturnir á teygða vatnsdropa.

Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta fuzzy-stólinn árið 1972 og hefur eftirspurnin eftir honum verið stöðug síðan. Fuzzy er lítill kollur með sútaðri lambsgæru og minna fæturnir á teygða vatnsdropa. Hægt er að fá gæruna í sex ólíkum litum og fæturna í þremur. „Hugmyndin er í raun komin úr fjósakollinum,“ segir Sigurður, sem er lærður húsgagnabólstrari. Á dögunum smíðaði Sigurður þúsundasta fuzzy stólinn og af því tilefni var búin til sérstök hátíðarútgáfa þar sem stóllinn er með álfótum. „Hugmyndin var að tengja saman íslensku kindina, sem við höfum lifað á í gegnum aldirnar, við nýja tímann,“ segir Sigurður en hátíðarútgáfuna er hægt að nálgast í Kraum, Epal og Mýrinni.

Árið 1972 var Sigurður að hætta störfum og segist hafa farið að föndra við að búa til stólinn. Hann sló í gegn og var afar vinsæl fermingargjöf næstu árin á eftir. „Á þriðjudaginn hringdi í mig fimmtug manneskja og sagðist hafa fengið stólinn í fermingargjöf. Hún hafði týnt einni löppinni undan stólnum og vildi vita hvort ég gæti hjálpað henni með það. Það er afskaplega gaman þegar fullorðið fólk segir mér frá slíku,“ segir Sigurður.

Hann segir það hafa komið sér á óvart að stóllinn yrði vinsæll svona lengi, hann bjóst ekki við að vera enn að smíða fuzzy-stóla tæpum fjörutíu árum eftir að fyrsta eintakið leit dagsins ljós. „Þetta er búið að koma mikið á óvart. Ég var bara að búa mér til lifibrauð á sínum tíma en öllum þykir stóllinn fallegur. Sumir stilla honum upp sem húsgagni en aðrir sem listmun,“ segir Sigurður og bætir við að stóllinn hafi á sínum tíma farið vítt og breitt um Evrópu og til Bandaríkjanna með Scandinavian Design og að auki sé eitt eintak af stólnum til sýnis hjá Hönnunarsafni Íslands. „Það sem hefur komið mér mest á óvart er að stóllinn er núna til sölu í Magasin du Nord. Það er búið að senda prufusendingu þangað og það hafa orðið einhver viðbrögð, hvað það verður veit ég nú ekki. En þetta hefði mér aldrei dottið í hug, að ég myndi selja húsgögn til Danmerkur. Danir eru miklir snillingar og maður hefur lært mikið af samskiptum við þá.“

Fuzzy kollarnir sýndir og seldir í Magasin du Nord

Frétt frá Vísir.is þann 22. október 2009.

Fuzzy kollarnir íslensku eru nú til sýnis og sölu í dönsku stórversluninni Magasin du Nord. Þar er þeim stillt upp í sérstöku rými þar sem ný og spennandi hönnun er til sýnis.

Sigurður Már Helgason hönnuður og smiður Fuzzy kollanna segir að þetta sýni að víða séu tækifæri í kreppunni. Hann er ánægður með að kollarnir séu til sölu í Danmörku og minnist þess ekki að íslensk húsgögn hafi áður verið seld þar í landi.

„Framundan hjá mér er svo að smíða sérstaka afmælisútgáfu af Fuzzy í tilefni þess að ég er að smíða þúsundasta eintakið af þessum kollum,” segir Sigurður. „Sá kollur verður frábrugðin hinum að því leiti að undir honum verða álfætur.”

Sigurður, sem orðinn er 69 ára gamall, segir að upphaflega hafi hann farið að smíða Fuzzy kollana til að hafa eitthvað að dunda við í ellinni. Nú hinsvegar anni hann ekki eftirspurn eftir þeim.

Fuzzy kollurinn hefur fjóra ávala viðarfætur. Setan er bólstruð með ekta íslenskri gæru.

Afmælisútgáfan:
Afmælisútgáfa